Selfyssingar drógust gegn úrvalsdeildarliði ÍR þegar dregið var í 4-liða úrslit Símabikars karla í handbolta í hádeginu í dag.
Í hinum leiknum mætast Akureyri og Stjarnan.
Selfyssingar tryggðu sér sæti í undanúrslitunum með því að leggja ÍBV fyrr í vikunni og N1-deildarlið Vals í 16-liða úrslitum.
Úrslitakeppnin verður með „final-four“ fyrirkomulagi þar sem undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikurinn fara fram sömu helgina, 8.-10. mars.