Selfoss sigraði HK í úrslitaleik

Selfoss sigraði HK í úrslitaleik B-deildar Fótbolta.net mótsins í knattspyrnu í Kórnum í Kópavogi í gærkvöldi. Lokatölur voru 2-0.

Liðin munu bæði leika í 1. deild í sumar. Jafnræði var með þeim í fyrri hálfleik, Viktor Unnar Illugason, fyrrum leikmaður Selfoss, átti skot fyrir HK yfir mark Selfoss snemma leiks en annars var fyrri hálfleikur tíðindalítill.

Selfoss náði þó forystunni á 35. mínútu þegar Magnús Ingi Einarsson skoraði úr þröngu færi. Selfoss með eins marks forystu í hálfleik.

HK hefði getað jafnað metin í seinni hálfleik þegar liðið fékk vítaspyrnu. Viktor Unnar fór á punktinn en Bergsteinn Magnússon, tvítugur markvörður Selfyssinga, varði spyrnu hans.

Varamaðurinn Sindri Rúnarsson innsiglaði svo sigur Selfoss á 81. mínútu þegar hann skoraði með skalla og liðið vann því B-deild Fótbolta.net mótsins.

Frétt frá Fótbolta.net.

Fyrri greinGistirúmin tvöfalt fleiri en íbúarnir
Næsta greinÖflugur sigur hjá Hamri