Selfoss tapaði með tólf marka mun þegar Grótta kom í heimsókn í Vallaskóla í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.
Grótta var mun sterkari í leiknum og leiddi í hálfleik með sex marka mun, 11-17. Grótta hafði áfram frumkvæðið í síðari hálfleik og lokatölur urðu 21-33.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Kristrún Steinþórsdóttir voru markahæstar Selfyssinga með 5 mörk, Margrét Katrín Jónsdóttir og Carmen Palamariu skoruðu 3 mörk, Þuríður Guðjónsdóttir 2 og þær Hildur Öder Einarsdóttir, Thelma Sif Kristjánsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir skoruðu allar 1 mark.