Selfoss vann öruggan sigur á Reyni Sandgerði í B-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í kuldanum á Selfossvelli í kvöld.
Hrvoje Tokic kom Selfyssingum yfir á 12. mínútu og hann bætti svo við öðru marki á 29. mínútu. Tveimur mínútum síðar kom Valdimar Jóhannsson Selfyssingum í 3-0. Þór Llorens Þórðarson skoraði fjórða mark Selfoss á 40. mínútu og staðan var 4-0 í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var öllu rólegri en Tokic bætti við tveimur mörkum, á 63. og 73. mínútu og með fjórða marki sínu í leiknum tryggði hann Selfyssingum 6-0 sigur.
Selfyssingar eru ósigraðir í riðlinum, með 9 stig eftir þrjá leiki.