Selfoss vann mjög sannfærandi sigur á Gróttu í Olísdeild karla í handbolta í kvöld en sá um leið á eftir deildarmeistaratitlinum í hendur Hauka.
Selfoss lagði Gróttu 29-20 á heimavelli í Iðu en Haukar náðu 27-27 jafntefli gegn ÍBV úti í Vestmannaeyjum og stigið dugði Haukum til þess að tryggja sér titilinn.
Munurinn mestur tíu mörk
Leikur Selfoss og Gróttu varð aldrei spennandi. Staðan var orðin 8-1 eftir 14. mínútur og Selfoss leiddi í leikhléi, 14-8. Munurinn varð mestur tíu mörk í seinni hálfleik, 24-14.
Elvar Örn Jónsson og Hergeir Grímsson voru markahæstir Selfyssinga með 6 mörk og Haukur Þrastarson skoraði 5/1. Atli Ævar Ingólfsson og Nökkvi Dan Elliðason skoruðu 3, Guðjón Baldur Ómarsson og Alexander Már Egan 2, Árni Steinn Steinþórsson 1 og Ari Sverrir Magnússon 1/1.
„Fínt að klára loksins leik sannfærandi“
Sölvi Ólafsson var besti leikmaður Selfoss í kvöld, varði 14/1 skot og var með 41% markvörslu. Pawel Kiepulski varði 3 skot og var með 40% markvörslu.
„Það var fínt að klára loksins leik sannfærandi. Við höfum verið í basli með það í vetur, oft náð góðu forskoti og misst það síðan niður. Við höfum ekki átt marga svona leiki í vetur þannig að þetta er góð tilfinning. En það er samt alltaf skemmtilegra að vinna leiki með einu marki,“ sagði Sölvi í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Þegar ein umferð er eftir af deildarkeppninni er Selfoss í 2. sæti með 32 stig. Haukar hafa 34 stig á toppnum og Valur 31 stig í 3. sæti. Haukar og Valur mætast í lokaumferðinni en Selfoss mætir Stjörnunni, sem gæti sömuleiðis verið líklegur andstæðingur Selfoss í úrslitakeppninni.