Alls tóku 70 keppendur þátt í héraðsmóti HSK og héraðsmóti fatlaðra sem haldin voru á Selfossi á tveimur kvöldum fyrr í þessari viku. Keppendur komu frá sex aðildarfélögum sambandsins. Gestaþátttaka var heimil og tóku nokkrir þátttakendur frá fimm félögum utan héraðs þátt í mótunum.
Umf. Selfoss vann yfirburðasigur í stigakeppni mótsins, lið Selfoss hlaut 397 stig, Hekla varð í 2. sæti með 32 stig og Garpur í 3. sæti með 22 stig.
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá Sigurjón Ægi Ólafsson úr Suðra meðal þátttakenda. Sigurjón er þekktari sem kraftlyftingamaður og var í fyrra valinn íþróttamaður HSK vegna árangurs í þeirri grein. Hann mætti nú á sitt fyrsta héraðsmót í frjálsum og kastaði þar kúlu og kringlu og stóð sig vel.
Á héraðsmótinu voru veitt verðlaun fyrir stigahæsta karl og konu á mótinu. Anna Metta Óskardóttir frá Selfossi var stigahæst kvenna með 33 stig og Hjálmar Vilhelm Rúnarsson Selfossi vann stigabikarinn í karlaflokki með 24 stig. Lið Umf. Selfoss hafði mikla yfirburði í stigakeppni þátttökuliða og hlaut 397 stig, Hekla varð í öðru sæti með 32 stig og Garpur í þriðja með 22 stig.
Eitt HSK met var sett á héraðsmótinu í yngri aldursflokkum, en Ívar Ylur Birkisson úr Dímon hljóp á 15,98 sek í 110 metra grindahlaupi á 106,7 cm grindur í flokki 16-17 ára. Gamla metið átti Tungnamaðurinn Róbert Einar Jensson, sem var 16,2 sek, sett 1992.
Óli setti tólf HSK met
Ólafur Guðmundsson, Umf. Selfoss, var á meðal þátttakenda og hann setti samtals 12 HSK met í flokki 55-59 ára í kúlu, kringlu, spjóti og sleggju. Hann bætti kúluvarpsmet Einars H. Haraldssonar, kringlukastmet Sveins J. Sveinssonar, sleggjukastmet Kjartans Lárussonar og spjótkastmet Tómasar Jónssonar. Þá setti Árný Heiðarsdóttir Selfossi þrjú HSK met í flokki 65-69 ára í kúlu og kringlu. Metið í kúlunni átti Helga Ívarsdóttir.
Heildarúrslit mótsins eru á www.fri.is.