Selfyssingar urðu bikarmeistarar í handbolta í dag í 4. flokki karla, yngra ári. Selfoss mætti Gróttu í jöfnum leik þar sem þeir vínrauðu voru mun sterkari á lokakaflanum.
Gríðarlega efnilegir drengir eru í báðum þessum liðum og var ekkert gefið eftir í baráttunni. Jafnræði var með liðunum nær allan leikin eða þar til Selfyssingar tóku frumkvæðið á síðustu 5 mínútunum. Lokatölur 22-26 og Selfoss bikarmeistarar.
Grímur Jakobsson, Gróttu, skoraði 13 mörk og var valinn maður leiksins.
Markahæstir hjá Selfossi voru Reynir Freyr Sveinsson og Elvar Hallgrímsson með 7 mörk hvor.