Tvö lið frá Selfossi í 6. flokki kvenna mættu til leiks í brakandi sól og blíðu á Landsbankamóti Tindastóls á Sauðárkróki um helgina.
Selfossstelpurnar stóðu sig vel á mótinu og gleðin var í fyrirrúmi bæði innan vallar og utan.
Rúmlega eitt þúsund keppendur tóku þátt í mótinu en það er fyrir stúlkur í 6. og 7. flokki. Mótið hefur aldrei verið jafn stórt en það er nú orðið annað af tveimur stærstu kvennamótum landsins með Símamótinu.