Spámenn fotbolti.net spá Selfyssingum falli úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu.
Knattspyrnusíðan byrjar að birta sína árlegu spá í dag og eru Selfyssingar þar neðstir á blaði.
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, er sérstakur álitsgjafi fotbolti.net og segir hann að ef stemmningin sem var utan vallar árið 2010 haldi sér, geti allt gerst.
„Selfyssingar eru margfalt, margfalt tilbúnari í úrvaldseildina núna en fyrir tveimur árum, bæði leikmannalega sem og reynslulega. Það er klárt að metnaðurinn er til staðar og liðið gæti slegið í gegn, en til þess þarf allt að ganga upp á Selfossi,“ segir Heimir.