Kvennaliði Selfoss er spáð 4. sætinu í Bestu deildinni í knattspyrnu í sumar í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í deildinni.
Spáin var birt á kynningarfundi fyrir Bestu deildina sem ku hafa farið fram í höfuðstöðvum KSÍ í gær.
Valskonum er ætlað að verja Íslandsmeistaratitil sinn en þær fengu 219 stig í spánni og voru rétt á undan Breiðabliki sem fékk 206 stig. Þar á eftir koma Stjarnan með 168 stig og Selfoss með 167 stig.
Besta deild kvenna í knattspyrnu hefst næstkomandi þriðjudag en fyrsti leikur Selfoss er á miðvikudag, á útivelli gegn nýliðum Aftureldingar.
Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna:
1. Valur – 219 stig
2. Breiðablik – 206 stig
3. Stjarnan – 168 stig
4. Selfoss – 167 stig
5. Þróttur R. – 130 stig
6. Þór/KA – 117 stig
7. ÍBV – 93 stig
8. Afturelding – 87 stig
9. Keflavík – 51 stig
10. KR – 50 stig