Set sigraði í firmakeppni SSON

Sigurvegari var Björgvin Smári Guðmundsson sem tefldi fyrir hönd Set. Ljósmynd/Aðsend

Firmakeppni Skákfélags Selfoss og nágrennis var haldin í Fischersetrinu á Selfossi þann 31. október síðastliðinn. Mótið er reglubundinn viðburður og mikilvægur þáttur í fjáröflun félagsins.

Að þessu sinni voru ellefu eftirfarandi fyrirtæki og félög  skráð í keppnina:  Sveitarfélagið Árborg, Kjörís, Mjólkursamsalan, Sláturfélag Suðurlands, Urður bókafélag, Fóðurblandan, Sauðfjársæðingastöðin, Landsbankinn,  Arion banki,  Tryggingamiðstöðin og Set.

Sigurvegari var Björgvin Smári Guðmundsson sem tefldi fyrir hönd Set.  Í öðru sæti var Jón Þ. Þór fyrir Sláturfélag Suðurlands og í þriðja sæti var Sverrir Unnarsson fyrir Kjörís.

SSON þakkar kærlega öllum styrktaraðilum og óskar Set til hamingju með sigurinn.

Fyrri greinSnjólfur með stórleik í sigri Selfoss
Næsta greinHeitavatnslaust á Hellu og Hvolsvelli