Undirbúningur heldur áfram fyrir næsta tímabil hjá Ægi í Þorlákshöfn og skrifuðu sex leikmenn undir nýja samninga við félagið í gær, laugardag.
Leikmennirnir eru Atli Rafn Guðbjartsson f.’98, Pétur Smári Sigurðsson f.’98, Ólafur Þór Sveinbjörnsson f.’98, Pálmi Þór Ásbergsson f.’94, Andri Sigurðsson f.’94 og Ragnar Olsen f.’95.
„Það er ánægjulegt að flestir eru þeir uppaldir Ægismenn og heimamenn og markmið félagsins er alltaf að reyna auka hlutfall þeirra í leikmannahóp meistaraflokks. Andri og Ragnar koma frá Reykjavík en hafa verið á samning og leikið með liðinu undanfarin ár og styrkja það mikið. Ægir fagnar því að hafa náð samningum við þessa efnilegu knattspyrnumenn og hlakkar til samstarfsins á næstu árum. Við þetta er að bæta að nú eru alls sjö uppaldir leikmenn Ægis komnir á samning hjá félaginu og er það eitthvað sem við fögnum,“ segir í tilkynningu frá Ægi.
Við sama tækifæri skrifaði Sveinbjörn Ásgrímsson undir samning við félagið sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Sveinbjörn er fæddur 1968 og er uppalinn Þorlákshafnarbúi. Hann átti farsælan knattspyrnuferil og spilaði meðal annars með Ægi, Hvöt, Tindastól og Skallagrím á árum áður. Hann sneri sér síðan að þjálfun og hefur komið að þeim störfum víða og einnig í Þorlákshöfn. Hann þjálfaði hjá Ægi frá 2007 til 2010 og var bæði með yngri flokka og meistaraflokk karla. Félagið býður Sveinbjörn hjartanlega velkomin til starfa á ný og hlakkar til að starfa með honum að efla meistaraflokk Ægis enn frekar.