Víkurskóli í Vík í Mýrdal er meðal þeirra skóla sem tekur þátt í átakinu Göngum í skólann.
Auk þess að vera dugleg að ganga í skólann fara krakkarnir í Víkurskóla í öllum bekkjum í 20 mínútna auka hreyfingu þrisvar í viku.
Skráning í Göngum í skólann er enn í fullum gangi en nú þegar hafa 73 skólar skráð sig til þátttöku í verkefninu. Hægt er að skrá skóla til þátttöku til 7. október sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn.
Markmið Göngum í skólann er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.