Kastþraut Óla Guðmunds fór fram með pompi og prakt á miðvikudaginn 3. september síðastliðinn á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.
Fín þátttaka var í þrautinni, tíu karlar og átta konur, sem er önnur fjölmennasta þrautin frá upphafi. Hörku keppni og skemmtilegir tilburðir sáust þetta kvöld þar sem gamanið var í fyrirrúmi.
Í karlaflokki sigraði þriðja árið í röð Hilmar Örn Jónsson ÍR á nýju mótsmeti karla í þraut en hann bætti gamla metið, sem hann átti sjálfur um rúmlega 200 stig, fékk 3.964 stig, í öðru sæti varð Jón Bjarni Bragason Breiðabliki með 2.994 stig og í þriðja sæti varð gestgjafinn sjálfur Óli Guðmunds Selfossi með 2.724 stig.
Í kvennaflokki voru, eins og í karlaflokknum, gamlar kempur í bland við ungar og upprennandi. Sigurvegari kvenna varð Anna Pálsdóttir Selfossi með 2.406 stig, en þetta er í 4. skiptið sem Anna sigrar kastþraut kvenna, í öðru sæti varð Eyrún Halla Haraldsdóttir Selfossi með 2.313 stig og í þriðja sæti varð Jóhanna Herdís Sævarsdóttir Laugdælum með 1.844 stig. Ekki langt undan í 4. sæti varð svo Sigríður Anna Guðjónsdóttir Selfossi með 1.832 stig en hún setti ein fjögur HSK met í sínum aldursflokki öldunga.
Efstu þrír í hvorum flokki fengu verðlaunapeninga í boði Bros gjafavers og sigurvegarinn fékk svo verðlaunagrip gefinn af Bros gjafaver og Guðmundi Kr. Jónssyni og Láru Ólafsdóttur.
Í lok móts var kaffi og bakkelsi í boði Guðnabakarís Selfossi. Frábært kvöld í frábæru veðri.