Það var rosaleg stemning í Frystikistunni í Hveragerði í kvöld þegar Hamar tryggði sér aftur sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta eftir langa bið. Sunnlenska.is var að sjálfsögðu á staðnum og fangaði augnablikið, sem lauk í kampavínsbaði í sturtuklefanum.