Slavica Dimovska, leikstjórnandi Hamars í Iceland Express deild kvenna í körfubolta, var í gær valin körfuboltakona ársins í Makedóníu.
Þetta er í fyrsta sinn sem hún hlýtur þessi verðlaun.
Slavica hélt upp á daginn með því að eiga stórleik á móti Keflavík í toppslag deildarinnar en hún var með 22 stig og 6 stoðsendingar í 32 stiga sigri Hamars.
Hamar hefur unnið alla 14 deildarleiki sína og Slavica er með 16,6 stig og 6,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Slavica var allt í öllu í liði Mladinec Skopje á síðasta tímabili og var kosin besti leikmaður úrslitakeppninnar þar sem liðið tryggði sér makedóníska meistaratitilinn eftir 3-1 sigur á Vigor Skopje í úrslitaeinvíginu.
Vísir greindi frá þessu