Allur aðgangseyrir að leik Selfoss og KA/Þórs í bikarkeppni kvenna í handbolta síðastliðið miðvikudagskvöld rann óskiptur til Gígju Ingvarsdóttur og fjölskyldu hennar.
Gígja er 11 ára handboltaiðkandi og ofurhetja á Selfossi sem er að berjast við krabbamein. Hún á því í harðri baráttu og það reynir eðlilega á fjölskylduna. Það var vel við hæfi að þessi leikur yrði fyrir valinu sem styrktarleikur, en Gígja á fjórar frænkur í liði KA/Þórs.
Þess má geta að allir borguðu sig inn, starfsmenn sem og leikmenn beggja liða, einhverjir lögðu svo frjáls framlög ofan á miðverð sitt. Alls söfnuðust 386.000 krónur á leiknum.
Handknattleiksdeild Selfoss þakkar öllum sem komu að leiknum innilega fyrir og sendir áframhaldandi baráttukveðjur til Gígju og fjölskyldu hennar. Selfoss tapaði reyndar leiknum þrátt fyrir flotta framistöðu, 21-29, en nánar má lesa um leikinn hér.
Vakin er athygli á því að hægt er að styrkja Gígju og fjölskyldu hennar með því að leggja inn á styrktarreikning fjölskyldunnar: 0123-15-203456, kt. 110380-5189.