Það er útlit fyrir spennandi lokakafla í 2. deild karla í knattspyrnu en Selfoss vann í dag öruggan sigur á botnliði Tindastóls á Sauðárkróki.
Þór Llorens Þórðarson kom Selfyssingum yfir á 16. mínútu og Hrvoje Tokic bætti við öðru marki á markamínútunni, þeirri 43., þannig að staðan var 0-2 í leikhléi.
Tokic bætti við öðru marki á 69. mínútu og Ingi Rafn Ingibergsson kom Selfyssingum í 4-0 á 86. mínútu, nýkominn inná sem varamaður.
Lið Tindastóls er fallið úr 2. deildinni en þeir fengu sárabótarmark þegar þrjár mínútur voru liðnar af uppbótartímanum og lokatölur urðu 1-4.
Nú eru þrjár umferðir eftir í 2. deildinni en Selfoss hefur 35 stig í 3. sæti og er tveimur stigum á eftir Leikni F. Næsti leikur Selfyssinga er í Vogunum sunnudaginn 8. september þegar liðið heimsækir Þrótt.