Selfyssingar unnu Hauka 30-32 í mögnuðum, framlengdum handboltaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld. Staðan í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn er 2-1, Selfoss í vil, og liðið getur tryggt sér titilinn á heimavelli á miðvikudagskvöld.
„Þetta er stærsta endurkoman hjá okkur. Það er ekkert grín að vera fimm mörkum undir á Ásvöllum á móti svona sterku Haukaliði. Þetta er gríðarleg liðsheild sem skilaði þessu,“ sagði Elvar Örn Jónsson í samtali við mbl.is eftir leikinn í kvöld en þeir vínrauðu eru tilbúnir í leikinn á miðvikudag.
„Það verður troðfullt hús og við mætum brjálaðir til leiks. Við ætlum að sigra á miðvikudaginn,“ sagði Elvar Örn.
Selfyssingar magnaðir á lokakaflanum
Jafnt var nánast á öllum tölum fyrstu fimmtán mínúturnar en þá tóku Haukar af skarið og náðu þriggja marka forskoti, 11-8. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss, tók þá leikhlé og í kjölfarið jöfnuðu Selfyssingar 14-14. Staðan í hálfleik var 15-14.
Haukar náðu aftur þriggja marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks, 19-16, og stóðu svo af sér áhlaup Selfyssinga sem höfðu minnkað muninn í eitt mark. Haukar bættu heldur betur í og náðu fimm marka forskoti þegar tíu mínútur voru eftir.
Þá tók Patrekur sitt síðasta leikhlé og Selfyssingar voru algjörlega magnaðir á lokakaflanum. Selfoss skoraði fimm mörk í röð og jafnaði 26-26. Lokasekúndurnar voru æsispennandi og bæði lið gátu tryggt sér sigurinn en staðan var 27-27 að sextíu mínútum liðnum.
Selfyssingar voru sterkari í framlengingunni og sigruðu að lokum 30-32.
Atli Ævar markahæstur og Sölvi frábær í rammanum
Atli Ævar Ingólfsson var markahæstur Selfyssinga í kvöld með 10/1 mark og 91% skotnýtingu, Elvar Örn Jónsson skoraði 6, Hergeir Grímsson 5, Haukur Þrastarson 4, Árni Steinn Steinþórsson var sterkur í vörninni með 8 lögleg stopp en hann skoraði 2 mörk eins og Guðjón Baldur Ómarsson og þeir Alexander Egan, Nökkvi Dan Elliðason og Guðni Ingvarsson skoruðu allir 1 mark.
Sölvi Ólafsson varði 14 skot í marki Selfoss og var með 54% markvörslu og Pawel Kiepulski varði 7 skot og var með 29% markvörslu.
Næsti leikur á miðvikudagskvöld
Liðin mætast í fjórða leik sínum í Hleðsluhöllinni á Selfossi á miðvikudagskvöld kl. 19:30 og þar geta Selfyssingar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Sigri Haukar verður oddaleikur á Ásvöllum á föstudagskvöld.