Selfoss tapaði naumlega fyrir Haukum í æsispennandi leik á Ásvöllum í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. Lokatölur urðu 22-20.
„Þetta var stál í stál allan leikinn og því miður endaði þetta með svekkjandi tveggja marka tapi. Það voru tvo flott lið að berjast í þessum leik og þetta féll með Haukaliðinu í dag,“ sagið Örn Þrastarson, þjálfari Selfoss, í samtali við mbl.is eftir leik.
Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og það var ekki fyrr en á síðustu tveimur mínútunum að Haukar náðu að knýja fram sigur. Staðan var 8-8 í hálfleik.
Kristrún Steinþórsdóttir var markahæst Selfyssinga í dag með 7 mörk, Perla Albertsdóttir skoraði 5, Arna Kristín Einarsdóttir og Ída Bjarklind Magnúsdóttir 2 og þær Katla María Magnúsdóttir og Harpa Sólveig Brynjarsdóttir skoruðu 1 mark hvor. Viviann Petersen varði 11 skot í marki Selfoss.
Selfoss er í 5. sæti Olís-deildarinnar með 3 stig.