Stokkseyri heimsótti Knattspyrnufélag Kópavogs í Fagralund í kvöld í 4. deild karla í knattspyrnu. Niðurstaðan varð 8-0 sigur heimaliðsins.
Leikurinn var markalaus fyrstu tuttugu mínúturnar en þá brast stíflan og KFK skoraði fjögur mörk á tuttugu mínútna kafla. Staðan var 4-0 í hálfleik og KFK bætti við öðrum fjórum mörkum í seinni hálfleiknum.
KFK er á toppi B-riðilsins með 23 stig en Stokkseyri er með 4 stig í 7. sæti.