Selfossi og Ægi er spáð falli úr Lengjudeild karla í knattspyrnu en spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í deildinni var birt í dag.
Selfyssingum er spáð 11. sætinu en liðið varð í 10. sæti í fyrra og Ægismönnum er spáð 12. og neðsta sætinu en þeir eru nýliðar í deildinni.
Það verður gul slikja yfir toppbaráttunni ef spáin gengur eftir því ÍA, Grindavík og Fjölni er spáð efstu sætunum.
Keppni í Lengjudeildinni hefst 5. maí en þá fær Selfoss Aftureldingu í heimsókn og Ægismenn taka á móti Fjölni.