Selfoss tapaði 1-2 þegar Íslandsmeistarar Breiðabliks komu í heimsókn á JÁVERK-völlinn á Selfossi í Pepsi-deild kvenna í dag.
Selfyssingar voru sprækari í upphafi en hvorugt liðið fékk teljandi færi á upphafsmínútunum. Hægt og bítandi tóku Blikar leikinn yfir með vindinn í bakið og uppskáru tvö mörk með fjögurra mínútna millibili þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður.
Staðan var 0-2 í hálfleik en í síðari hálfleik stjórnuðu Selfyssingar leiknum en gekk hins vegar illa að skapa færi. Lauren Hughes átti skot í varnarmann og inn á 72. mínútu og nokkrum mínútum síðar fékk Kristrún Antonsdóttir hörkufæri en skaut yfir. Nær komust Selfyssingar ekki og náðu ekki að pressa Blika af neinu ráði í lokin og lokakaflinn var tíðindalítill.
Selfoss er í 5. sæti Pepsi-deildarinnar með 6 stig að loknum fjórum umferðum.