Selfyssingar fóru í fýluferð til Grindavíkur í kvöld þar sem þeir töpuðu 1-0 gegn heimamönnum í 1. deild karla í knattspyrnu.
Það var hávaðarok í Grindavík sem hafði mikil áhrif á gæði knattspyrnunnar. Heimamenn léku undan vindi í fyrri hálfleik og sóttu meira en tókst ekki að koma knettinum í netið.
Færin voru ekki mörg í seinni hálfleiknum og leikurinn í járnum þangað til Grindvíkingar skoruðu eina mark leiksins á 63. mínútu eftir snyrtilega sókn.
Selfyssingar sóttu meira í kjölfarið og áttu nokkrar álitlegar sóknir en ekki tókst þeim að koma boltanum í netið.
Selfoss er komið niður í 11. sæti deildarinnar með 4 stig en liðið mætir næst toppliði Fram á Selfossi eftir viku.