Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss hefur ráðið Tönju Birgisdóttur sem yfirþjálfara á efsta stigi deildarinnar fyrir næsta fimleikatímabil.
Tanja ætti að vera flestum kunnug enda hefur hún þjálfað hjá deildinni í mörg ár en færði sig yfir til Stjörnunnar síðastliðið haust. Hún hóf aftur störf hjá fimleikadeild Selfoss þann 1. júní, reynslunni ríkari.
Í tilkynningu frá stjórn fimleikadeildarinnar segir að aðrar breytingar hjá deildinni séu enn í mótun og verða kynntar þegar þær liggja fyrir.