Íþróttamaður ársins 2023 í Hrunamannahreppi er Telma Þöll Þorbjörnsdóttir en viðurkenningar vegna afreka Hrunamanna á sviði íþrótta voru afhentar á Flúðum á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Telma Þöll sem keppir í golfi vann gullverðlaun í sínum flokki í golfi á Heimsleikum Special Olympics sem fóru fram í Berlín í júní 2023 og þar var hún einnig stigahæst af öllum kvenkyns keppendum á level 1. Hún var valin íþróttakona Suðra 2022-2023 og fékk viðurkenningu fyrir góða ástundun og framkomu í sinni íþrótt.
Hún hefur æft golf af miklu kappi og sýnt miklar framfarir og uppsker núna heldur betur eins og sáð hefur verið til á undanförnum árum. Telma er fyrsti Hrunamaðurinn sem tekur þátt í Ólympíumóti og er samfélagið allt afar stolt af hennar góða árangri.
Aðrir sem hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu 2023 voru Eyþór Orri Árnason, Anna Katrín Víðisdóttir og Valdís Una Guðmannsdóttir sem öll spila körfuknattleik með eftirtektarverðum árangri.