Þór mætir Val í undanúrslitum

Lárus Jónsson, þjálfari Þórs. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Íslandsmeistarar Þórs Þorlákshöfn mæta Val í undanúrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. Dregið var í undanúrslitin nú í hádeginu.

Undanúrslita- og úrslitaleikir karla og kvenna fara fram á helgi hinna fjögurra fræknu í janúar í Smáranum í Kópavogi. Undanúrslitaleikir karla verða 12. janúar, undanúrslitaleikir kvenna 13. janúar og úrslitaleikirnir 15. janúar.

Í hinni viðureigninni hjá körlunum mætast Stjarnan og Keflavík.

Hjá konunum dróst Njarðvík gegn Haukum og Snæfell gegn Breiðabliki.

Fyrri greinÓk á hreindýr vestan við Hala
Næsta grein„Gaman að finna hvers maður er megnugur þegar maður fer út fyrir þægindaramman“