Landsliðsmennirnir Elvar Örn Jónsson, Björgvin Páll Gústafsson og Ólafur Guðmundsson greindust jákvæðir fyrir COVID-19 eftir PCR próf hjá mótshöldurum Evrópumótsins í handbolta í morgun.
Allir leikmenn á mótinu eru skimaðir reglulega og komi upp smit þurfa leikmenn að fara í fimm daga einangrun hið minnsta og skila neikvæðum niðurstöðum úr tveimur PCR-prófum til þess að mega snúa aftur á keppnisvöllinn.
Í tilkynningu frá HSÍ segir að leikmennirnir séu komnir í einangrun og séu með mjög lítil einkenni. Ekki verður kallað á nýja leikmenn í leikmannahópinn að sinni.