Selfyssingurinn Haukur Þrastarson er tilnefndur sem besti ungi leikstjórnandi í heimi á árinu á handboltavefnum handball-planet.com.
Haukur, sem er 18 ára gamall, fór mikinn í vetur með Íslandsmeistaraliði Selfoss en hann er tilnefndur ásamt Frakkanum Kylian Villeminot leikmanni Montpellier, Slóvenanum Fomen Makuc sem leikur hjá Celje Laso og Ungverjanum Matyas Gyori hjá Tatabanya.
Evrópskir blaðamenn tilnefndu fjóra leikmenn í hverja stöðu og geta lesendur handball-planet.com kosið á milli þeirra.
Hægt er að taka þátt í kosningunni með því að smella HÉR