Tokic áfram á Selfossi

Tokic og Jón formaður handsala samninginn á JÁVERK-vellinum. Ljósmynd: UMFS/AHM

Framherjinn Hrvoje Tokić skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss. Tokic hefur stimplað sig inn sem algjör lykilmaður í liði Selfoss og skorað 10 mörk í deild og bikar í sumar.

„Þetta var mjög auðveld ákvörðun fyrir mig. Ég er mjög ánægður hérna á Selfossi. Þetta hefur verið gott samstarf hingað til og ég er sannfærður um að það verði það áfram,“ sagði Tokic eftir undirskriftina.

„Ég er nokkuð ánægður með mína frammistöðu í sumar þó svo að ég telji að ég geti gert enn betur. Ég og liðið erum að bæta okkur, ég á eftir að skora miklu fleiri mörk í sumar og við ætlum klárlega upp,“ sagði Tokic að lokum.

Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, fagnar undirskriftinni. „Við erum gífurlega ánægðir með þetta. Tokic hefur verið frábær fyrir okkur síðan að hann kom. Hann er ekki bara að gera hlutina vel innan vallar heldur einnig utan hans. Hann er frábær fyrirmynd fyrir okkar ungu leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksbolta,“ segir Jón.

Fyrri greinJón Daði til Millwall
Næsta greinSkjálfti í Torfajökulsöskjunni