Framherjinn Hrvoje Tokic skrifaði í dag undir eins árs samning við Knattspyrnufélagið Ægi í Þorlákshöfn og mun hann leika með liði félagsins í 2. deildinni á næstu leiktíð.
„Flestir sem þekkja eitthvað til íslensks fótbolta vita hver króatíski markahrókurinn Hrvoje Tokic er, en hann hefur leikið á Íslandi frá árinu 2015. Hann spilaði fyrir Víking Ólafsvík, Breiðablik og nú síðast með Selfossi. Hann hefur spilað 119 deildarleiki hér á landi og skorað í þeim 84 mörk. Af leikjunum 119 eru 42 í efstu deild, þar sem hann hefur gert 14 mörk,“ segir í tilkynningu frá Ægismönnum.
Í tilkynningunni er Tokic boðinn hjartanlega velkominn í Ægi en þar á bæ er tilhlökkun fyrir því að byggja upp sterkt lið fyrir næsta keppnistímabil.