Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við Antonio Espinosa til eins árs. Espinosa er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum.
Toni, eins og hann er kallaður, er Íslandi vel kunnugur, en hann lék tímabilin 2013 og 2014 með Víkingum úr Ólafsvík þar sem hann skoraði 8 mörk í 22 leikjum bæði í Inkasso og Pepsí-deildinni.
Síðasta árið hefur Toni leikið í Jórdaníu.