Íslandsmót 15 ára og yngri í glímu og önnur umferð Meistaramótaraðar Glímusambands Íslands verða haldin í Íþróttahúsinu á Hvolsvelli á morgun, laugardaginn 9. nóvember.
Keppni hefst á Íslandsmóti 15 ára yngri kl. 10 og fullorðinsmótið kl. 13:00, eða að loknu barnamótinu.
Barnamótið hefst kl 10:00 og er gert ráð fyrir tæplega 50 keppendum. Fullorðinsmótið hefst kl 13:00, að loknu barnamótinu.
Áhugafólk um íslenska glímu ætti ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.
Hér má sjá skráninguna á 2. umferð Íslandsmótsins:
Unglingar -80kg
Kjartan Mar Garski Ketilsson, UÍA
Jóel Reynisson, UMFN
Konur -70kg
Kristina Podlyna
Konur +70kg
Kristín Embla Guðjónsdóttir, UÍA
Marta Lovísa Kjartansdóttir, UÍA
Marín Laufey Davíðsdóttir, HSK
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, UMFN
Fanney Ösp Guðjónsdóttir, UÍA
Karlar +90kg
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, UÍA
Guðmundur Stefán Gunnarsson, UMFN
Einar Eyþórsson, Mývetningi
Opinn flokkur kvenna
Kristín Embla Guðjónsdóttir, UÍA
Marta Lovísa Kjartansdóttir, UÍA
Marín Laufey Davíðsdóttir, HSK
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, UMFN
Kristina Podlyna, UMFN
Fanney Ösp Guðjónsdóttir, UÍA
Opinn flokkur karla
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, UÍA
Kjartan Mar Garski Ketilsson, UÍA
Guðmundur Stefán Gunnarsson, UMFN
Einar Eyþórsson, Mývetningi