Umf. Selfoss tekur við knattspyrnuakademíunni

Guðjón Bjarni og Bragi handsala samninginn. Ljósmynd/Árborg

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss hefur tekið yfir rekstur knattspyrnuakademíunnar við Fjölbrautaskóla Suðurlands af Knattspyrnuakademíu Íslands, sem hefur séð um akademíuna frá stofnun árið 2006.

Nýverið var undirritaður samstarfssamningur milli Sveitarfélagsins Árborgar og knattspyrnuakademíunnar þar sem knattspyrnudeild Umf. Selfoss tók formlega við rekstrinum.

Árborg hefur styrkt akademíur FSu í gegnum það öfluga forvarnarstarf sem fer fram hjá akademíunum. Hjá akademíunum skrifa iðkendur undir sérstakan samning þar sem þeir skuldbinda sig til að tileinka sér heilbrigt líferni og lífstíl. Meðal annars að neyta ekki tóbaks, munntóbaks, áfengis eða annarra vímuefna.

„Við erum stolt af akademíunum við FSu og viljum sjá þær vaxa og dafna áfram. Um leið er ánægjulegt að rekstur þeirra er nú alfarið hjá íþróttafélögunum i Árborg,“ sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni en hann undirritaði samninginn ásamt Guðjóni Bjarna Hálfdánarsyni, stjórnarmanni hjá knattspyrnudeildinni.

Fyrri greinLjósin tendruð á jólatrénu í Hveragerði
Næsta greinTil þjónustu reiðubúin