Ungmennaliðið tapaði á Akureyri

Tryggvi Sigurberg Traustason. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Ungmennalið Selfoss sótti Þór Akureyri heim í Grill66 deild karla í handbolta í dag. Heimamenn reyndust sterkari í leiknum og sigruðu að lokum 33-29. Staðan í hálfleik var 17-13.

Eftir leiki dagsins er Selfoss-U í 6. sæti deildarinnar með 18 stig en Þór Ak. er í 4. sæti með 25 stig.

Elvar Elí Hallgrímsson og Tryggvi Sigurberg Traustason voru markahæstir Selfyssinga með 6 mörk, Haukur Páll Hallgrímsson og Gunnar Flosi Grétarsson skoruðu 5, Sölvi Svavarsson og Vilhelm Freyr Steindórsson 3 og Einar Ágúst Ingvarsson skoraði 1 mark.

Fyrri greinStefán Gunnar tekur ekki sæti á lista Framsóknar
Næsta greinSunnlensku liðin skildu jöfn