Uppskeruhátíð frístunda- og menningarnefndar Árborgar hefur frestað fram á nýtt ár. Hátíðin hefur venjulega verið á milli jóla og nýárs.
Í ljósið aðstæðna ákvað nefndin að fresta hátíðinni en á henni hafa meðal annars íþróttakona og -karl Árborgar verið útnefnd, ásamt því að veita viðurkenningar og hvatningarverðlaun fyrir góðan árangur á árinu.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu telur nefndin það ábyrgasta í stöðunni að fresta viðburðinum fram á nýtt ár með þá von að hægt verði að halda hann í opnum sal með áhorfendum. Ný dagsetning verður auglýst síðar.