Búið er að breyta leikstað undanúrslita og úrslita Lengjubikarsins karla og kvenna í körfubolta. Undanúrslit karla og úrslitaleikir karla og kvenna verða í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi.
Úrslitakeppnin átti að fara fram á Sauðárkróki en þegar ljóst var að Tindastóll ætti ekki lið í úrslitunum né annað lið af svæðinu töldu forráðamenn Tindastóls og KKÍ það best fyrir körfuknattleikinn í landinu að úrslitin fari fram á suðvesturhorni landsins þar sem að öll liðin koma þaðan.
KKÍ og félögin sem taka þátt í úrslitum Lengjubikarins þakka Tindastól fyrir þá vinnu sem þeir höfðu farið í vegna úrslitanna sem og þann skilning að best sé fyrir úrslit Lengjubikarsins að þau fari fram á suðvesturhorninu að þessu sinni.
Dagskráin á Selfossi verður þessi:
Föstudagur 2. október Iða Selfossi
Kl. 18.15 FSu-Stjarnan
Kl. 20.30 Þór Þ.-Haukar
Laugardagur 3. október Iða Selfossi
Kl. 14.00 Úrslitaleikur kvenna
Kl. 16.30 Úrslitaleikur karla