Í kvöld hefst úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta þar sem bæði Hamar og FSu verða í eldlínunni.
Höttur varð deildarmeistari í vetur og fer beint upp í Domino’s deildina að ári.
Næstu fjögur lið, lið í sætum 2.-5. keppa fjögurra liða úrslitakeppni um eitt laust sæti að auki í deild þeirra bestu á næsta ári.
Leikið er heima og að heiman til skiptis þar til lið hefur unnið tvo leiki. Þau lið sem fara áfram í úrslit leika gegn hvort öðru á sama máta og þarf tvo sigurleiki til að tryggja sér sigur í úrslitunum.
Leikir kvöldsins:
Hamar-ÍA (Leikur 1)
Hamar hafnaði í 2. sæti og leikur gegn ÍA sem urðu í 5. sæti.
Leikurinn fer fram í Hveragerði og hefst kl. 19.15.
Sýnt verður beint frá leiknum á netinu á HamarTV
FSu-Valur (Leikur 1)
FSu hafnaði í 3. sæti og leika gegn Val sem varð í 4. sæti.
Leikurinn fer fram í Iðu á Selfossi og hefst kl. 19.15
Allir leikir í úrslitakeppninni verða að venju í beinni tölfræðilýsingu á kki.is.