Kvennalið Selfoss tapaði 1-2 þegar Þór/KA kom í heimsókn á Selfoss í Bestu deildinni í knattspyrnu í dag.
„Útlitið er orðið svart. Við verðum bara að reyna að sjá einhverjar framfarir í okkar leik, sem við getum byggt ofan á. Það eru búnar að vera of litlar framfarir undanfarnar umferðir. Í dag var samt orkan góð, við vorum að reyna að berjast sem eining og það er eitthvað sem ég tek með mér úr þessum leik,“ sagði Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Mark eftir 22 sekúndur
Selfoss byrjaði með boltann, missti hann, Þór brunaði fram og skoraði, 0-1 eftir 22 sekúndur. Sannarlega áfall fyrir botnlið Selfoss sem náði ekki upp neinu spili fyrsta hálftímann.
Á 32. mínútu fengu Selfyssingar hornspyrnu og Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir náði að moka boltanum í netið af mjög stuttu færi. Selfyssingar hresstust við jöfnunarmarkið en urðu fyrir áfalli tíu mínútum síðar þegar Katla María Þórðardóttir fékk rautt spjald fyrir að sparka í andstæðing þegar boltinn var ekki nálægt.
Börðust vel manni færri
Manni færri þurfu Selfyssingar að verjast allan seinni hálfleikinn og treysta á skyndisóknir. Þær stóðu sig vel í því og Idun-Kristine Jörgensen var frábær í markinu. Henni tókst þó ekki að koma í veg fyrir sigurmark Þórs/KA á 65. mínútu.
Selfyssingar lögðu ekki árar í bát og á síðustu tíu mínútunum voru þær mun líklegri til að jafna heldur en gestirnir að auka forskotið.
Það tókst þó ekki og Selfossliðið er niðurnjörvað á botninum með 11 stig þegar fjórir leikir eru eftir.