Glæsilegar sýningar voru í þriðju keppni Suðurlandsdeildarinnar 2020 í gærkvöldi, þar sem keppt var í fimmgangi í Rangárhöllinni á Hellu.
Það var lið Byko sem var stigahæsta liðið og er nú í góðri stöðu fyrir lokakeppnina þar sem keppt verður í tölti og skeiði en nóg er þó eftir af stigum í pottinum og allt getur gerst.
Í úrslitum atvinnumanna var það Valdís Björk Guðmundsdóttir á Fjólu frá Eskiholti úr liði Fákasels sem stóð uppi sem sigurvegari eftir góða sýningu og geggjaða skeiðspretti sem hún hlaut frábæra einkunn fyrir. Í úrslitum áhugamanna var það Dagbjört Hjaltadóttir á Heklu frá Laugarbökkum úr liði Heklu hnakka sem sigraði eftir frábæra sýningu.
Úrslit atvinnumanna
Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
1 | Valdís Björk Guðmundsdóttir / Fjóla frá Eskiholti II | 7,26 |
2-3 | Hinrik Bragason / Byr frá Borgarnesi | 7,12 |
2-3 | Herdís Rútsdóttir / Klassík frá Skíðbakka I | 7,12 |
4 | Gústaf Ásgeir Hinriksson / Brynjar frá Bakkakoti | 7,05 |
5 | Sara Sigurbjörnsdóttir / Flóki frá Oddhóli | 6,90 |
6 | Elin Holst / Spurning frá Syðri-Gegnishólum | 6,62 |
Úrslit áhugamanna
Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
1 | Dagbjört Hjaltadóttir / Hekla frá Laugarbökkum | 6,55 |
2-3 | Karen Konráðsdóttir / Lind frá Hárlaugsstöðum 2 | 6,38 |
2-3 | Aasa Ljungberg / Árdís frá Litlalandi | 6,29 |
4 | Svanhildur Hall / Þeyr frá Holtsmúla 1 | 6,19 |
5 | Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir / Álfrún frá Bakkakoti | 5,98 |
6 | Sævar Örn Sigurvinsson / Esja frá Skíðbakka I | 5,95 |
Staðan í liðakeppninni er nú þannig að Byko er í 1. sæti með 219,5 stig, Húsasmiðjan í 2. sæti með 190 stig og lið Krappa og lið Hemlu/Hrímnis/Strandarhöfuðs eru jöfn í 3.-4. sæti með 175,5 stig. Úrslitin munu ráðast í Rangárhöllinni þann 17. mars þar sem keppt verður í tölti og skeiði og er það lokakeppni tímabilsins.