Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss hefur ákveðið að kalla Valorie O’Brien til baka úr láni frá HK/Víkingi og verður hún spilandi þjálfari Selfoss í Pepsi-deildinni út leiktíðina.
Valorie hefur leikið með HK/Víkingi í 1. deildinni í sumar auk þess að þjálfa Selfossliðið í Pepsi-deildinni.
Fjórir leikmenn meistaraflokks kvenna eru að fara til Bandaríkjanna í háskóla á næstu vikum og þess vegna var ákveðið að kalla Valorie til baka frá HK/Víkingi og nýta krafta hennar einnig innan vallar. Valorie hefur áður klæðst Selfosstreyjunni en hún lék með Selfyssingum í Pepsi-deildinni árin 2012 og 2013. Auk hennar munu fleiri leikmenn bætast í leikmannahópinn á næstu dögum.
Þeir leikmenn sem fara vestur um haf nú síðsumars eru þær Karitas Tómasdóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir, Eva Lind Elíasdóttir og Erna Guðjónsdóttir.
Guðjón Bjarni Hálfdánarson, þjálfari meistaraflokks Árborgar í 4. deild karla, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Valorie og mun hann sinna því starfi í sumar, samhliða því að stýra Árborg.
Adólf Ingvi Bragason, formaður knattspyrnudeildarinnar, sagði í samtali við sunnlenska.is að von sé á frekari fréttum af leikmannamálum liðsins í lok þessarar viku.