Héraðsmót HSK í golfi fatlaðra var haldið á Svarfhólsvelli á Selfossi þann 13. september síðastliðinn. Mótið gekk vel og þegar því var lokið var haldið á Búlluna þar sem keppendur og aðstandendur nutu góðra veitinga.
Þeir sem kepptu á héraðsmótinu höfðu æft golf í sumar hjá Íþróttafélaginu Suðra. Þjálfari þeirra var Alexandra Eir Grétarsdóttir og stjórnaði hún mótinu.
Úrslit
Konur:
1. sæti María Sigurjónsdóttir
2. sæti Telma Þöll Þorbjörnsdóttir
3. sæti Sigríður Erna Kristinsdóttir
Karlar:
1. sæti Eðvald Huginn Hólmarsson og Árni Bárðarson
3. sæti Bjarni Friðrik Ófeigsson