Vésteinn flytur Kipketer til landsins

Stórhlauparinn Wilson Kipketer er á leiðinni til Íslands fyrir milligöngu Vésteins Hafsteinssonar en Kipketer mun halda námskeið í hlaupaþjálfun á Grand Hótel í Reykjavík þann 18. nóvember nk.

Wilson Kipketer er fæddur í Kenía en gerðist síðar danskur ríkisborgari og keppti fyrir Danmörku sem millivegalengdahlaupari við góðan orðstír.

Heimsmet hans utanhúss í 800 m hlaupi, 1:41,11 mín, stóð í þrettán ár en var fyrst slegið nú í sumar af David Rudisha á Ólympíuleikunum í London. Kipketer á hins vegar enn heimsmetin innanhúss í 800 m og 1000 m.

Kipketer var heimsmeistari þrisvar sinnum í röð árin 1995, 1997 og 1999. Samanlagt náði hann í tíu verðlaunapeninga á stórmótum eins og Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum og Evrópumeistaramótum.

Kipketer var kosinn íþróttamaður ársins í karlaflokki í Evrópu árið 1997 og frjálsíþróttamaður ársins í karlaflokki í heiminum árið 1997.

Það er því enginn smá kappi sem kemur til landsins innan tíðar til þess að miðla íþróttamönnum, þjálfurum og öðrum áhugamönnum um hlaupaþjálfun af reynslu sinni.

Það eru þau Vésteinn Hafsteinsson og Fríða Rún Þórðardóttir sem standa að komu Kipketer til Íslands en skráning og nánari upplýsingar eru á vesteinn.com eða hjá Fríðu Rún í síma 898-8798 eða fridaruner@hotmail.com.

Fyrri greinTveir í haldi eftir innbrot í Selvogi
Næsta greinKötlusetrið fékk bingóágóða