Fimm keppendur frá júdódeild Selfoss kepptu á Opna danska meistaramótinu í júdó sem fram fór í Vejle í febrúar.
Alls fóru 22 keppendur frá Íslandi á mótið en Selfyssingarnir fimm voru þeir Vésteinn Bjarnason, Hrafn Arnarsson, Böðvar Arnarsson, Jakub Tomczyk og Breki Bernharðsson. Einnig var Egill Blöndal með sem þjálfari.
Vésteinn náði lengst af Íslendingunum á mótinu en hann vann þrjár glímur og tapaði einni í -60 kg flokki U15 ára og vann silfurverðlaun. Aðrir náðu ekki eins langt en nokkrir unnu ýmist eina til tvær glímur.
Eftir mótið fóru Selfyssingarnir í tveggja daga æfingabúðir til að undirbúa sig fyrir komandi Norðurlandamót, sem haldið verður á Íslandi í apríl.