Viðar Örn Kjartansson fékk í kvöld verðlaun sem besti sóknarmaður tímabilsins í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Viðar skoraði 14 mörk í 20 leikjum með sænsku meisturunum í Malmö áður en hann gekk til liðs við Maccabi Tel Aviv í Ísrael í ágúst.
Lengi vel var Viðar markahæstur í deildinni en í lokaumferðinni skoraði John Owoeri, framherj Hacken, fernu og tryggði sér gullskóinn.
Kári Árnason, varnarmaður Malmö, var einn af þremur sem kom til greina í vali á varnarmanni ársins.
Fotbolti.net greinir frá þessu.