Selfoss tapaði naumlega gegn Haukum í leik tvö í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta á Selfossi í kvöld, 26-27. Staðan í einvíginu er 1-1.
„Þetta var hörkuleikur og kemur ekkert á óvart þar. Við náðum að koma okkur í góða stöðu í fyrri hálfleik en erum klaufar í lok fyrri hálfleiks og svo byrjum við seinni hálfleikinn illa eins og í síðasta leik. Það er eitthvað sem við þurfum að laga. Það vantaði smá klókindi þegar við erum komnir yfir og að halda haus þegar við erum komnir í þessa stöðu. Við slökum svolítið á og við getum ekki boðið upp á það,“ sagði Haukur Þrastarson, markahæsti leikmaður Selfoss, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
„Við þurfum bara að skoða leikinn og það er fullt af hlutum sem við getum bætt. Við verðum fúlir í smá stund í kvöld en svo gírum við okkur bara upp í næsta leik á morgun og á sunnudaginn og mætum 100% þar. Þetta verður bara stríð,“ sagði Haukur ennfremur.
Frábær kafli í fyrri hálfleik
Það var jafnt á nánast öllum tölum fyrstu fimmtán mínúturnar en þá tóku Haukarnir frumkvæðið og náðu tveggja marka forskoti, 8-6. Síðasta korterið í fyrri hálfleik var hins vegar eign Selfyssinga þar sem þeir skoruðu átta mörk gegn einu og breyttu stöðunni í 14-9. Haukar skoruðu tvö síðustu mörkin í fyrri hálfleik og staðan var 14-11 í leikhléi.
Selfoss hélt forystunni fyrstu átta mínúturnar í seinni hálfleik en þá jöfnuðu Haukar 18-18. Selfyssingar voru skrefinu á undan í framhaldinu en leikurinn var æsispennandi og mikið um mistök. Haukar náðu frumkvæðinu á lokamínútunum og komust í 25-26 þegar ein og hálf mínúta var eftir.
Haukur jafnaði fyrir Selfoss þegar 36 sekúndur voru eftir og síðasta sókn Hauka virtist vera að renna út í sandinn. Daníel Þór Ingason negldi boltanum að marki upp á von og óvon þegar þrjár sekúndur voru eftir. Knötturinn endaði í netinu og Haukarnir stigu sigurdans.
Haukur markahæstur
Haukur Þrastarson var markahæstur Selfyssinga með 7 mörk, Nökkvi Dan Elliðason skoraði 5/2, Elvar Örn Jónsson 5, Árni Steinn Steinþórsson 4, Alexander Már Egan 2 og þeir Atli Ævar Ingólfsson, Hergeir Grímsson og Guðni Ingvarsson skoruðu allir 1 mark. Alexander Már og Hergeir voru öflugir í vörninni í kvöld ásamt Sverri Pálssyni.
Sölvi Ólafsson varði 10 skot í leiknum og var með 31% markvörslu. Hann náði sér ekki á strik í seinni hálfleik og varði þá aðeins 3 skot. Pawel Kiepulski kom inná í tæpar tíu mínútur í seinni hálfleik og náði ekki að verja skot.
Breyttur messutími á sunnudaginn
Staðan í einvíginu er 1-1 og liðin mætast næst í Hafnarfirði á sunnudagskvöld kl. 18:00. Áhorfendur eru beðnir um að athuga breytta tímasetningu frá áður auglýstum leiktíma.