Vorfundur Ungmennafélags Íslands er haldinn í dag á Selfossi. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, setti fundinn í morgun.
Yfir fjörutíu fulltrúar ungmenna- og héraðssambanda sækja fundinn sem standa mun yfir í allan dag.
Þórir Haraldsson, formaður unglingalandsmótsnefndar fyrir Unglingalandsmótið á Selfossi í sumar, var með kynningu á mótinu og fór með fulltrúa um svæðið sem hýsa mun unglingalandsmótið í sumar. Aðstæður allar á Selfossi eru fyrsta flokks og glæsileg íþróttamannavirki hafa verið byggð á síðustu árum. Þá flutti Dr. Sigrún Gunnarsdóttir frá Þekkingasetri um þjónandi þjónustu áhugavert erindi undir yfirskriftinni ,,Þjónandi forysta“.
Jón Páll Hreinsson, formaður HSV, verður með kynningu á samstarfi HSV og Ísafjarðarbæjar. Eftir hádegið verða fyrirlestrar, fyrirspurnir og kynning á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður í Mosfellsbæ í sumar.