Þór Þorlákshöfn vann góðan sigur á Keflavík í Domino's-deild karla í körfubolta í kvöld í fyrsta heimaleik vetrarins í Icelandic Glacial-höllinni í Þorlákshöfn.
„Þetta var ekki fallegasti leikurinn en ég var ánægður með að landa sigri. Það má segja að vörnin hafi gefið okkur þetta þó að Tobin Carberry hafi verið mjög sterkur í sókninni,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs, í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
„Við erum á ágætis róli en eigum eftir að smyrjast betur saman. Það er tilhlökkun hjá okkur að fá kjötið í teignum í Grétari og það mun gefa okkur aðra vídd. Hann kemur vonandi inn í þetta uppúr næstu mánaðamótum. Að sama skapi var ég mjög ánægður með Davíð, Emil og Óla í dag,“ sagði Einar ennfremur.
Leikurinn var jafn allan tímann og liðin skiptust á að gera áhlaup. Heilt yfir voru Þórsarar þó frískari. Þeir leiddu 40:30 í hálfleik og voru svo sterkari í lokin þó að Keflvíkingar hafi andað hressilega ofan í hálsmálið á þeim.
Tölfræði Þórs: Tobin Carberry 30 stig/7 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Helgi Jónsson 11 stig/5 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 8 stig, Maciej Baginski 8 stig/6 fráköst, Emil Karel Einarsson 6 stig, Þorsteinn Már Ragnarsson 4 stig, Ragnar Örn Bragason 4 stig/7 fráköst, Magnús Breki Þórðason 3.