Ljósmyndaklúbburinn 860+ heldur opnaði ljósmyndasýningu á Hótel Hvolsvelli sl. laugardag.
Níu meðlimir klúbbsins eiga mynd á sýningunni og er myndefnið afar fjölbreytt. Myndirnar eru alls tuttugu og tvær og allar til sölu.
Ljósmyndaklúbburinn 860+ var stofnaður í september 2008 þegar nokkrir áhugaljósmyndarar af svæðinu tóku sig saman til að efla þekkingu sína á ljósmyndun. Öll eiga þau það sameiginlegt að búa eða hafa búið í sveitarfélaginu Rangárþingi eystra en nafn klúbbsins 860+ er vísun í póstnúmer sveitarinnar, 860 og 861.
Sýningin stendur fram í desember.