Jón Bjarnason, dómorganisti í Skálholtskirkju, heldur orgeltónleika í hádeginu þrisvar sinnum í viku í nóvember. Tónleikarnir eru um það bil 30 mínútur.
Hægt verður að kaupa sér léttan hádegisverð í Skálholtsskóla að loknum tónleikum.
Fyrstu tónleikarnir verða miðvikudaginn 1. nóvember klukkan 12:00 og verða svo miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga út mánuðinn alltaf klukkan 12:00-12:30.
Markmið tónleikanna er tvíþætt, annars vegar að bjóða uppá tónlistarupplifun fyrir gesti og hins vegar að afla fjár í gluggaviðgerðasjóð. Tekið er við frjálsum framlögum.
Allir velkomnir.